Skip to main content Skip to footer

Málningarvinna


Málum innan- og utanhúss með vandaðri undirvinnu og snyrtilegum frágangi. Ferskt yfirbragð sem endist.

Vantar þig fagmann í málningarvinnu?

Við tökum að okkur málningarvinnu fyrir heimili, bæði innan- og utanhúss. Hvort sem það er að fríska upp á eitt rými eða taka stærra verkefni í gegn, leggjum við áherslu á rétta undirvinnu, hreina línu og frágang sem lítur vel út í smáatriðunum.
Við sinnum meðal annars spörslun, grunnun og málun á veggjum, loftum, tréverkum, listum og hurðum. Ef verkefnið tengist endurbótum er oft sniðugt að samræma vinnuþætti, til dæmis í heildaruppfærslu á baðherbergi.

Af hverju að velja fagmann?

Góður málningarfrágangur snýst ekki bara um litinn, heldur undirlagið. Óvönduð undirvinna getur valdið sprungum, flögnun, ójöfnum flötum og mislitun. Með faglegri framkvæmd færðu jafna áferð, betri endingu og snyrtilegan frágang við kanta, horn og samskeyti.

Markmiðið er að skila rými sem lítur vel út strax og heldur sér vel til framtíðar.

Professional icon. Vönduð undirvinna
Spörslun, slípun og grunnun sem tryggir slétt yfirborð og endingargóða málningu.
Reliable icon. Nákvæmur frágangur
Hrein kantavinna, fallegar línur og snyrtilegur frágangur við lista, horn og kverkar.
Affordable icon. Traust og samskipti
kýr ráðgjöf, sanngjarnt tilboð og vönduð vinnubrögð frá upphafi til afhendingar.

Er kominn tími á málningarvinnu?

Hafðu samband og fáðu faglega ráðgjöf og tilboð án skuldbindingar. Við skoðum aðstæður, ræðum litaval og frágang og finnum lausn sem passar þínum þörfum og fjárhagsramma.

Viltu vandaða vinnu
sem endist?


Hafðu samband og fáðu faglega ráðgjöf.